Wednesday, September 28, 2005

Djö.......veður!!!

Halló lesendur góðir.....
Ekkert mikið að gerast þessa dagana enda hvað er hægt í þessu veðri annað en að sitja inni og spila.
Sem er einmitt það sem maður hefur verið að gera undanfarið. Tókum Trivial strákarnir í gær og tók það miklu lengri tíma en við ætluðum. Við byrjuðum yfir (endanum) Arsenal leiknum og enduðum í lokin á United leiknum. Það var kaka á hverri spurningu og veit ég ekki hvað það segir um gáfur okkar að þetta hafi tekið þennan rosalega tíma. En allavega þá hófst þetta að lokum.
Maður var ánægður með United-sigurinn í gær en þetta var ekki alveg öruggt fyrr en á 85. mín....sjúkkket. Ruud van Nistel-horse með markið.
Fótboltinn er ekki enn byrjaður og veit maður ekki hvort það sé gott eða slæmt......það er obbó gott að eiga "frí" á kvöldin.
En ég þarf að fara í Frönsku núna því ég fer að vinna í Féló kl. 5 og Eric verður brjálaður ef ég mæti seint OG fer snemma.....annars erum við fínir vinir, hann er bara svoldið mislyndur.
Lag vikunnar (Er að spá í að breyta því í lagið sem er inni) (OK ég geri það bara núna)
Lagið sem er inni : Cary Brothers - Blue eyes
Lexían : Allt tekur lengri tíma en þú býst við
Þangað til næst
Penguin / out

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Albert: Gaur pókerinn maður.....nú verð ég hooked á póker....

5:19 AM  
Blogger inga said...

hvenær á að kíkja suddur í slottið :) hér er alltaf verið að spila!!

2:11 PM  
Blogger Penguin said...

maður á eftir að skella sér vonandi fljótlega

4:28 AM  

Post a Comment

<< Home