Búinn með Prófin...og helgin bara eiginlega komin
Ja lesendur góðir...
ég segi það og skrifa. Helgin er komin og prófin BÚIN. JEYYYYY.
Var í Frönsku í dag og það gekk ekkert alltof vel en sjáum samt til. Annars hafa öll hin prófin gengið vel og er ég bara mjög sáttur.
Helgin verður með skemmtilegra sniði og lagt í hann til Akureyrar á Laugardagsmorgni og keppt frá 2-6......svo sjáum við til hvað gerist fram að balli og gist heima hjá Þorbjörgu systur mömmu.
Svo keyrt heim þegar maður treystir sér til á Sunnudeginum.
Er að spá í að fara í frjálsa tímann kl. 10 enda búinn að stunda þá grimmt meðan Fótboltinn er ekki. Gaman gaman
En það verður tekið á því um helgina og skemmt sér vel. Vonast til að sjá sem flesta á Akureyri um Helgina.
Þarf að snúa mér aftur að vinnu.
Hvað er á iPod-aranum: Rufus Wainwright - California
Plata vikunnar kemur á Sunnudaginn
Þangað til næst
Penguin / out

5 Comments:
Hey gaur, það var mega fjör á barnum á laugardagskvöldið! Algjör vitleysa að vera á A-key!!!
já...en það var samt gaman á Akureyri. Heyrði þú varst ekkert að stoppa fyrir hægri reglunni í gær....æddir bara fram einsog e-r vitleysingur ;)
Maður stoppar nú ekki fyrir hverjum sem er!!! :D
Við munum nú öll hvað gerðist síðast þegar Ingvi keppti á framhaldsskólamótinu í fússball
Já.....þap muna vonandi allir ;)
Post a Comment
<< Home