Sunday, October 09, 2005

Slappt Laugardagskvöld!!!

Halló lesendur góðir.....
Helgin er að verða búin en samt ekki alveg því ég fer ekki í próf fyrr en á Þriðjudaginn. Byrjað var á fimmtdaginn hjá Magga en ég var að vinna til 22 og var ekki í stuði til að drekka....ég átti ekki neitt og keyrði bara...sem var fínt. Svo var Föstudagskvöldið skemmtilegt og aðeins betur tekið á því. Vorum hjá Berta fram eftir kvöldi og skemmtum okkur konunglega. Svo var farið á KK (kaffi krók) og hlustað á Styrmi frænda syngja og var það mjög gaman. Leiðin heim gekk brösulega og margt ósiðlegt fór fram í bílnum og er það aðallega Bjarka að þakka en Snorri átti einnig stórann þátt. Ég fór samt heim um 4 leytið að sofa enda vinna kl. 10 í skaffó daginn eftir.
Laugardagskvöldið hélt ég að yrði skemmtilegt en það varð hundleiðinlegt. Allir heima að horfa á sjónvarpið eða þreyttir eða þunnir eða latir eða fundu ekki pláss til að spila póker eða nenntu ekki út því allir aðrir voru þreyttir, þunnir, latir eða fastir yfir sjónvarpinu. Þannig að ég fór ekki út fyrr en 1 og kom heim kl. um 2. Ekki skemmtilegt kvöld og ætla ég rétt að vona að næsti Laugardagur verði ekki eins uuuuuuuhhhhhhhhhh enda verðum við flestir á Akureyri vegna framhaldskólamótsins í knattspyrnu... Vííííííííííí.
En ég ætla ekki að hafa þetta væl í mér e-ð lengra.
Þangað til næst
Penguin / out

3 Comments:

Anonymous Sonurinn said...

Það er fundur næsta föstudagskvöld marr, komdu og vertu mað Ingvalingur!!!

4:23 PM  
Blogger inga said...

Ég skal garantera það að það verður enginn að horfá á sjónvarpið, né latur á laugardaginn, svo verða menn og konur búnar að hlaupa úr sér þynnkunna um daginn þannig að það verður gígantískt stuð..samt allt dísent sko... :D

5:09 AM  
Blogger Penguin said...

Ég reyni að koma á fundinn...og það verður gaman um helgina á Akureyri...það er eitt sem víst er!!

3:34 PM  

Post a Comment

<< Home